Friday, October 29, 2010

Ferðin og koman á skipið!

Blessuð!

Var að koma um borð á skipið fyrir um 4 tímum og allt í messi!

Flugferðin frá London-Hong Kong-Sydney var algjört hell! Mjög lítið pláss í vélinni, sérstaklega fyrir lappalanga einsog mig (mamma þú hefðir bilast!) og mjööög erfitt að halda rónni í 12 tíma fluginu frá London til Hong Kong. Frá Hong Kong til Sydney var skömminni skárra.. 9 tímar og sætið við hliðina á mér var laust þannig að ég gat aðeins hreyft mig... Þrátt fyrir það svaf ég ekkert af viti og 3 tíma nóttina fyrir brottför, þannig að þið getið ýmindað ykkur hvernig ég er í apagrímunni þessa stundina..

Ég var búin að hugsa það alla vikuna að taskan mín ætti eftir að týnast á þessu langa ferðalagi og viti menn..
Þegar ég kom til Sydney beið ég í 45 mín eftir töskunni.. Svo þegar við vorum þarna 2 eftir að bíða kemur maður til mín og spyr mig að nafni og segir svo voða rólegur að taskan mín hafi orðið eftir í London og að hún komi bara í fyrramálið...!!! Alveg frábært! Ég ekki með eina einustu flík í handfarangri og búin að vera á 30 tíma ferðalagi og gat ekki beðið eftir því að komast í sturtu og skipta um föt..
Þar sem að ég verð farin til Melbourne á morgun þarf að senda hana þangað og ég fæ hana þá vonandi á morgun eða á mánudaginn..
Sem betur fer er herbergisfélaginn minn, Maria frá Bretlandi rosalega indæl og lánaði mér allt sem ég þurfti, þannig að ég gat farið í sturtu og svona..
Svo fór ég strax í þjálfun og meiri þjálfun og fékk svo 2 tíma pásu til þess að "leggja mig" og skaust þá um allt skip til þess að finna internet og fann það loksins..

Ég er svo svakalega áttavillt hérna! Allt crew dæmið er í sitthvorum endanum og á sitthvoru dekkinu og ég er alveg í ruglinu hérna.. Er á crew barnum núna og ég veit ekki einusinni hvort ég sé fremst eða aftast í skipinu! Hahaha :D Þetta lærist víst á viku segja þau sem vinna hérna..

Við förum af stað til Melbourne á eftir og siglum framhjá óperuhúsinu fræga.. Ég er að vona að ég fái bara frí eftir öryggisæfinguna á eftir og geti slakað aðeins á og farið svo snemma að sofa, því ekki veitir af :)

Ég læt í mér heyra á næstu dögum og set inn nokkrar myndir..

Bæjó.. 
Brynja ;)

Wednesday, October 27, 2010

Allt að gerast :)

Ég ætla að reyna að halda uppi blogsíðu á meðan ég er úti til þess að allir sem vilja geti fylgst með ævintýrinu :)

Ég er að fara af stað seinnipartinn í dag og verð komin til Sydney um 8 leitið á laugardagsmorguninn á staðartíma. Athugið að þeir eru 11 tímum á undan í Ástralíu, sem þýðir að þá verður klukkan um 21:00 á föstudagskvöldinu hérna heima ;)

Get ekki beðið eftir því að vera komin þangað eftir laaaangt ferðalag..
Ég reyni svo að blogga fljótlega eftir að ég kem út..













(skipið mitt)



Stay tuned..! :)

Kv. Brynja :)